Psalms 148

1Halelúja. Lofið Drottin af himnum, lofið hann á hæðum. 2Lofið hann, allir englar hans, lofið hann, allir herskarar hans. 3Lofið hann, sól og tungl, lofið hann, allar lýsandi stjörnur. 4Lofið hann, himnar himnanna og vötnin, sem eru yfir himninum. 5Þau skulu lofa nafn Drottins, því að hans boði voru þau sköpuð. 6Og hann fékk þeim stað um aldur og ævi, hann gaf þeim lög, sem þau mega eigi brjóta. 7Lofið Drottin af jörðu, þér sjóskrímsl og allir hafstraumar, 8eldur og hagl, snjór og reykur, stormbylurinn, sem framkvæmir orð hans, 9fjöllin og allar hæðir, ávaxtartrén og öll sedrustrén, 10villidýrin og allur fénaður, skriðkvikindin og fleygir fuglar, 11konungar jarðarinnar og allar þjóðir, höfðingjar og allir dómendur jarðar, 12bæði yngismenn og yngismeyjar, öldungar og ungir sveinar! 13Þau skulu lofa nafn Drottins, því að hans nafn eitt er hátt upp hafið, tign hans er yfir jörð og himni. 14Hann lyftir upp horni fyrir lýð sinn, lofsöngur hljómi hjá öllum dýrkendum hans, hjá sonum Ísraels, þjóðinni, sem er nálæg honum. Halelúja.
Copyright information for Icelandic